Tuesday, October 30, 2007

Bessastaðir

Mamma las það í einhverju blaðanna fyrir stuttu að nýkjörinn forseti Argentínu væri kona, Cristina Fernandez de Kirchner. Hún las fréttina upphátt fyrir mig, vandaði sig rosa að bera fram nafnið hennar, og við vorum báðar hæst ánægðar með þessa fínu frú.
Svo byrjuðu kvöldfréttirnar og þá var talað aðeins meira um forseta Fernandez þar sem meðal annars kom fram að frúin er lögfræðimenntuð. Þá leit mamma hægt á mig með augun galopin, spennt eins og einhver æðri sannleikur hefði vitrast henni, og sagði: "Kannski verður þú forseti.."

3 comments:

Grétar said...

hahaha. Þessi mynd er alveg rosaleg

Salóme said...

Takktakk.. Ég sýndi mömmu hana áðan og hún spurði mig bara hvar ég hefði fengið þessi jakkaföt.

OlgaMC said...

nei, ég stefni á forsetann. eða við getum bara boðið okkur fram á sama tíma og sjáum hvor hefur betur.